← Til baka

Umhverfisstefna Furu

Fura hefur frá upphafi lagt áherslu á flokkun, endurvinnslu og endurnýtingu hráefna. Á starfsstöðinni við Hringhellu 3 í Hafnarfirði er tekið við fjölbreyttum efnum sem eru flokkuð og unnin til frekari notkunar.

Stærstur hluti efnanna fer til sérhæfðra endurvinnsluaðila í Evrópu þar sem þau verða að nýju hráefni. Stál er til dæmis brætt og nýtt aftur í framleiðslu, á meðan hjólbarðar eru unnir í nýjar vörur á borð við gúmmíhellur og annað gúmmíefni.

Á Íslandi er Furuflís framleidd úr timburúrgangi sem fellur til í starfseminni. Furuflís er meðal annars nýtt sem undirlag fyrir dýr og í önnur verkefni þar sem timbur fær nýtt hlutverk.

Með öflugum tækjabúnaði og markvissri flokkun fær sem mest af efnunum nýtt líf. Þannig verða málmar, timbur og hjólbarðar að verðmætum auðlindum í stað úrgangs.