Hjá Furu viljum við gera endurvinnslu einfaldari, skilvirkari og aðgengilegri fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Markmið okkar er að bæta umhverfið og létta á verkefnum viðskiptavina með persónulegri þjónustu, skjótum viðbrögðum og áreiðanlegum lausnum.
Fura hefur starfað frá árinu 1981 og hefur verið þátttakandi í íslenskri endurvinnslu í meira en fjóra áratugi. Frá fyrstu dögum hefur fyrirtækið þróast samhliða auknum kröfum um umhverfisvernd og sjálfbærni. Sú reynsla sem byggst hefur upp í gegnum árin gerir okkur kleift að veita örugga, faglega og skilvirka þjónustu á hverjum degi.
Það sem aðgreinir Furu er samspil þjónustu, hraða og flokkunar. Við leggjum mikla áherslu á að flokka og vinna hráefni á sem hagkvæmastan hátt þannig að verðmæti þeirra nýtist sem best. Jafnframt leggjum við okkur fram um að veita persónulega þjónustu og skjót viðbrögð, hvort sem um er að ræða afhendingu gáma, söfnun efnis eða aðstoð við stærri verkefni. Markmiðið er alltaf að gera ferlið einfalt fyrir viðskiptavininn og sjá um verkefnið frá upphafi til enda.