Umhverfisvænt undirlag úr íslenskum tréspæni

← Til baka

Furuflís

Fura hóf framleiðslu á tréspæni úr timburúrgangi haustið 2013 og hefur framleiðslan aukist jafnt og þétt samhliða fjárfestingum í fullkomnari búnaði. Spænaverksmiðja Furu er í dag sú afkastamesta sinnar tegundar á landinu með allt að 5.000 tonna framleiðslugetu á ári. Furuflís er umhverfisvænt undirlag úr endurunnu timbri sem fellur til innanlands. Það hentar vel í reiðhallir, hesthús og gripahús. Þegar efnið hefur verið notað verður haugurinn úr hesthúsunum að áburði fyrir skóga framtíðarinnar og þannig lokast hringrásin.

Þrjár vörutegundir

Fura framleiðir og selur þrjár vörutegundir undir vörumerkinu Furuflís, allar ætlaðar sem undirlag fyrir búpening. Smelltu á hverja tegund til að sjá nánar.

Furuflís

Fínni kurlaður tréspænir. Vinsælt undirlag í stíur hesthúsa — heldur vel raka og er mjúkt undir hófa.

Gólfflís

Tréspænir sem eru grófari en furuflísin. Kurlaður tréspænir í grófari áferð, sérstaklega ætlaður sem undirlag í reiðhöllum þar sem stundaðar eru tamningar, sýningar og keppnir.

Furukögglar

Framleiddir úr viðarryki sem fylgir mölun timbursins. Tryggja fullnýtingu hráefnis og draga úr rykmengun. Mikið notaðir í stíur hesthúsa.

Undirlag í stíum og reiðhöllum

Afurðir Furuflísar eru lang vinsælastar meðal hestafólks sem nýtir Furuflís og Furuköggla í stíur hesthúsa sinna og Gólfflís sem undirlag í reiðhöllum. Eru gólf reiðhallanna þá gjarnan þakin Gólfflísinni frá Furu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um Furuflís, verðflokka og söluaðila víða um land eru að finna á Facebook. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið okkar eða hringja.